Árgangur ´78_Njarðvík

Allir að mæta þann 11.maí...!

13.05.2007 23:29:30 / njardvik78

Myndir, myndir, myndir...

Búin að setja upp myndasíðu, kíkið á tengil vinstra megin á síðunni eða klikkið á tengilinn hér að neðan, þar inni eru gömlu myndirnar frá Siggu Viggu og einnig myndirnar mínar frá kvöldinu. :D

http://public.fotki.com/njardvik78/ 

Þið sem voruð með myndavél á lofti þetta kvöld, endilega látið vita og fáið passwordið til að pósta þær inn á síðuna. :)

Með bestu kveðju, og takk aftur fyrir geggjað skemmtilegt kvöld. Vona að við sjáumst sem flest á förnum vegi og bestu kvejur til þeirra sem komust ekki, bæði úti sem annars staðar. ;)

Anna Steinunn og co. :lol: :D :haha:


» 17 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 09:56:49 / njardvik78

Takk fyrir frábært kvöld!

Jæja þá er kvöldið liðið og vonandi allir búnir að jafna sig á þynkunni. Þeir allra hörðustu fóru kannski að djamma í gær líka. :$

Við í stjórninni viljum þakka ykkur fyrir skemmtilegt og vel heppnað kvöld. Til þess að partý heppnist svona vel þarf fyrst og fremst að vera skemmtilegt fólk á staðnum. Þið eruð æðisleg :haha:

Angel

Við vorum náttúrulega eins og englar allt kvöldið!

Við dönsuðum mikið og voru fæturnir ansi lúnir eftir kvöldið (ég skipti aðeins þrisvar um skó vegna dansþreytu!)

En það var eitthvað sem varð eftir. T.d svört kvenmannspeysa (golla) og hvítur og rauður trefill. Ég er með þá hérna hjá mér þannig að eigendur hafa samband við mig.

Endilega höldum áfram að kommenta og spalla saman á síðunni.

Kær kveðja og fyrir hönd stjórnarinnar heitnu, Anna Margrét


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 02:55:32 / njardvik78

Og nú er komið að því...

 

Reunionið er í kvöld folks svo það er eins gott að vera til í slaginn!! Það verður hvergi slegið af, og partymoodið sett í sjötta gírinn...  8)

Bara til að hafa allt á hreinu:

Hver kemur með sitt áfengi...

Nasl verður á staðnum...

Góða skapið er skilyrði... :lol:

og hamlaus gleði og glaumur eftir allri nóttu er garenterað !!

 

Þá er bara að segja: SJÁUMST Á EFTIR...!  :haha:

Hver á svo eftir að enda svona öfugur í kvöld??  ;)

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 10:14:17 / njardvik78

Partý-föstudag...Partý-föstudag...Partý-föstudag...

2 dagar í PARTÝ....

 

Je minn, það er orðið svo stutt í þetta. Ekki frá því að stress sé að gera vart við sig, fyrir utan allt prófstressið!! 8|  En þáttakan er svaka góð, stemmning í öllum sem heyrst hefur í og skipulagningin í góðum farvegi svo von er á sudda skemmtilegu kvöldi. :D  Nú er bara að drífa sig fyrir þá sem eiga eftir að fylla út spurningalistann að fylla út og senda hann á okkur(tekur 2 mín.)

See you soon, og áfram EIKI HAUKS!!   :klikk: 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 13:01:54 / njardvik78

PH.= Pípandi Heimsk

Je minn, ég bara varð að fá að tjá mig aðeins.

Var að lesa fyrstu yfirlýsingu Paris Hilton síðan hún var dæmd í 45 daga fangelsi fyrir að keyra full og brjóta skilorð. Stelpukvikindið telur dóminn vera óréttmætan og miskunarlausan!!  8|Comm on. Eru til einhv. ákveðin stjörnulög sem ég veit ekki um sem gildir bara yfir fræga og ríka?? Falla svona frægur fyrir að vera "frægur" týpur ekki undir sömu lög og við hin? Og til að toppa þetta þá rak hún fjölmiðlafulltrúann sinn þar sem hún segir hann hafa sagt henni að hún mætti alveg keyra full "starfs síns vegna"!!!  :S

Hvaða starfs?? Djamma, og vera sæt og heimsk? Það kemur ekki margt annað til greina... :D

 Dettur í hug að ég fái nú alla vegna comments á þetta...! ;)

 

Það styttist í föstudaginn folks... :haha:


» 14 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 00:09:26 / njardvik78

1. vika í partý

party

Jæja, um þetta leyti eftir viku verður gulli sleginn bjórinn, tindrandi hvítvín eða ilmandi rauðvínið að gúlpast niður í gallonum ofan í eldhresst Njarðvíkurgengið ´78(og vatnið sem eru í vatninu-vonandi bara örfáir, eða meira sterkt). :)  Maturinn ljúffengur, skemmtileg stemmning og minningar úr gamla góða tímanum flakkandi millri hlátraskalla...  :haha:

Mikill undirbúningur hefur legið að baki þessu kvöldi svo það er von að allir eigi eftir að skemmta sér hið besta.

Hins vegar er ágætt að benda á að ef einhver vill troða upp, syngja, dansa, glamra á gítar, halda smá tölu, eða bara eitthvað til að gera kvöldið enn eftirminnilegra og skemmtilegra, þá er öllum frjálst að undirbúa eitthvað og láta ljós sitt skína á reunioninu. :)  Ekki vera feimin!  Ef þú hefur eitthvað fram að færa, endilega láttu okkur vita. (asj@hi.is, annamargret@borgaskoli.is, hallgerdur.lind@gmail.com)

Svo tek ég bara undir orð Siggu Viggu, allir að vera með og peppa upp smá stemmara fyrir kvöldið. Verum dugleg að kvitta og/eða kommenta. Gaman að sjá að fólk sé að fylgjast með!!

Með stuðkveðju, Annapanna 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 00:55:41 / njardvik78

LOKASÉNS eða vertu úti...

Jæja, þetta er allra síðasti séns til að borga folks. 

Þeir sem ekki verða búnir að borga FYRIR lokun banka FÖSTUDAGINN 4.MAÍ fá ekki inn í partýið. Við verðum að gefa upp lokatölu um heildarfjölda strax eftir helgi(búin að fá 2* frest) svo nú er að duga eða drepast!!

ATH. þeir sem ekki borga fyrir þann tíma fá ekki inn!! (við verðum merkt og inngangurinn tryggilega varður af dyravörðum svo það þýðir ekkert að no pay and sneak in)

Ekki vera slúbertinn sem tíndi miðanum, sauðurinn sem gleymdi að borga og nagar sig í handarbökin yfir því, eða fýlan sem vill ekki koma og sér svo eftir því. :D

Hvernig á ég að borga? Leggið kr. 3.500 inn á reikning...

Reikningsnúmer: 0301-26-7810          Kt: 251078-5999

og sendið staðfestingu á smsi til Önnu Möggu í síma 695-3913.

Koma svo....


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 01:05:26 / njardvik78

Talandi um myndir.

Ef þið eigið einhverjar nýlega mynd af ykkur á tölvutæku formi þe. í tölvunni, þó það séu jólamyndirnar eða hvað og þó að fleiri séu inná henni, þá endilega sendið eins og eina nýlega mynd af ykkur með spurningalistanum.

later folks, annapanna.


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 00:34:14 / njardvik78

Tónlist

Hæ hæ,

Ótrúlega gaman að sjá hvað margir ætla að koma, bara örfáir eftir að borga, þeir taki það til sín sem eiga það.

Okkur vantar nauðsynlega græjur til að vera með í salnum, helst með magnara, er einhver sem á svoleiðis eða getur reddað því?? Við erum nú með nokkra hljómsveitagæja hérna í bekknum. Reddarar gefi sig fram á síðunni....

 Kveðja Hallgerður


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 18:26:37 / njardvik78

Myndir, æðislegt!

Hún Sigríður Vigdís tók sig til og sendi mér gommu af myndum. Alveg fullt sem við ætlum að láta rúlla um kvöldið. Ef fleiri gætu nú farið að hennar fordæmi og sýnt smá lit!

Kveðja Anna Margrét

Hunskist þið síðan til að borga!:klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 13:34:38 / njardvik78

Info um bekkjarárganginn!!

Hæ öll.

 Í póstinum sem við sendum ykkur í enda mars var spurningalisti sem ykkur var ætlað að fylla út og senda til baka á okkur. Þetta var ekkert flókið, einungis helstu upplýsingar um ykkur og ykkar hagi til að fá update. Þar sem ekki allir virðast hafa fengið bréfið til sín, týnt því eða annað því um líkt ætla ég að setja upp hér það sem ykkur var ætlað að svara. Ég bið ykkur öll um að svara, hvort sem þið mætið eða ekki 11.maí, því gaman væri að heyra af ykkur öllum og við ætlum að láta þetta update af bekkjarfélögunum rúlla á kvöldinu.

Eftirfarandi þurfið þið að svara og senda til baka á mig.

  1. Nafn:
  2. Fæðingardagur:
  3. Hjúskaparstaða: Gift(ur)/Í sambúð/Fráskilin(n)/Á kærasta(u)/Á lausu          
  4. Nafn maka:_______________
  5. Börn: Já/Nei    
  6. Ef já, hve mörg?    
  7. Nafn og aldur barna: ______________
  8. Menntun: Grunnskólapróf/Stúdentspróf/Iðnmenntun/Háskólapróf/Annað
  9. Hvaða menntun: _______________
  10. Hvar býrðu í dag?  _______________
  11. Við hvað vinnuru og hjá hverjum?(ef þú ert í skóla, hvaða skóla og hvað að læra)
  12. Hver er skemmtilegasta minning þín úr Njarðvík?
  13. Geturu hugsað þér að flytja aftur til Reykjanesbæjar?(ef þú býrð ekki þar nú)

Ekki flóknar né langar eða erfiðar spurningar svo um að gera að drífa sig að svara. Þið sendið svo svörin á mig, Önnu Steinunni, á meilið asj@hi.is sem fyrst svo ég nái að setja þetta upp áður en prófin byrja. :)

Þið sem hafið þegar sent mér þurfið að sjálfsögðu ekki að senda aftur.

Mbk. Anna Steinunn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 13:11:17 / njardvik78

Djókur.

Three men were sitting together bragging about how they had given their new wives duties.

The first man had married a Woman from Colorado and had told her that she was going to do the dishes and house cleaning. It took a couple days, but on the third day he came home to a clean house and dishes washed and put away.

The second man had married a woman from Nebraska He had given his wife orders that she was to do all the cleaning, dishes, and the cooking. The first day he didn't see any results, but the next day he saw it was better. By the third day, he saw his house was clean, the dishes were done, and there was a huge dinner on the table.

The third man had married a girl from Iceland . He told her that her duties were to keep the house cleaned, dishes washed, lawn mowed, laundry washed and hot meals on the table for every meal. He said the first day he didn't see anything, the second day he didn't see anything, but by the third day some of the swelling had gone down and he could see a little out of his left eye, enough to fix himself a bite to eat and load the dishwasher.

Kraftur í íslensku kvenfólki.... :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 16:32:44 / njardvik78

Nú er komið að ykkur...

Jæja nú er komið að ykkur að aðstoða okkur. Við ætlum að sýna myndir og eitthvað húllumhæ en okkur vantar svo skjávarpa. Ef einhver á svoleiðis eða veit hvar hægt er að nálgast slíkt þarfaþing þá endilega láta okkur vita, sem fyrst.

Gísli minn þetta var nú meira kynding heldur en einhver alvara. En verðið er allavega 3500 kr. og nú fer hver að verða síðastur. Það vill enginn missa af partýi ársins út af einhverjum trassaskap.:cry:

Kveðja Anna Margrét

P.S og myndirnar streyma bara inn!


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 11:47:41 / njardvik78

Innlögn

Sumir virðast þurfa að taka út á okkur hinum sinn trassaskap og skeyta skapi sínu á okkur, þegar þeir hafa tínt þessum æðislega bækling sem var sendur. En af því að ónefndur aðili sem er frekar pirraður :$ er ekki eini sem er búinn að tína upplýsingunum þá koma upplýsingarnar hér.

Reikningsnúmer: 0301-26-7810

Kt: 251078-5999

Ekki eru enn allir búnir að leggja inn og það fara að vera síðustu forvöð að vera með.

Spenningskveðja AMS :haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 16:43:17 / njardvik78

Gleðilegt sumar :)

Gleðilegt sumar öll sömul. Langaði aðeins að lífga upp á síðuna, hún var bara svo helv... vetrarleg. :lol:

Kv Anna Margrét


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
RSS tengill
Dagsetning
23. febrúar 2012
Fermingar/bekkjarafm�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1749 dögum
A�?�?�?°alpart�?�?�?½i�?�?�?° �?�?�?­ b�?�?�?¦num
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1749 dögum